11/07 2007, Wednesday

NÝTT BLOGG

Við erum flutt á snorriogisol.wordpress.com þar sem iBlog virðist koma og fara eftir veðrum og vindum. Hér verður því ekkert bloggað meira

08/21 2007, Tuesday

Sumarið sæta


Fjölskyldan hjá Space Needle
Allt heila kompaníið fyrir utan Space Needle

Jæja þá eru Kalli og Gugga, Kiddi og Kristbjörg, Andri og Hekla farin heim, heimsóknin var frábær í alla staði og mikið brallað, etið og kneyfað.

Kalli horfir út á Höfn, Vancouver Hekla Katrín í sólinni Óskar og Kalli afi í pásu

Við gerðum þó nokkuð, vorum dugleg, fórum til Seattle, Vancouver, Butchard Gardens og Sooke. Verslunarferðir, safnferðir og átferðir voru all nokkrar.

Í Sólbaði, Thetis Lake

Sædýrasöfn, dýragarðar, stjörnuskoðunarsafn og strandferðir voru á dagskrá og svo var líka bjórsmökkun og grill tilraunir í hávegum hafðar.

Sædýrasafnið í Vancouver Kalli og Hvalirnir

Látum Ísól taka við. 

Í "Sundlauginni" á Lam Circle

Sumarið líður alltof hratt og mér finnst hálf ótrúlegt að hugsa til þess að skólarnir byrja á ný eftir 2 til 3 vikur. Sumarið er búið að vera yndislegt. Pabbi Gugga, Kristbjörg Kiddi og börn komu í 3 vikur og það var frábær tími, nóg að gera alla daga. Fórum meðal annars til Seattle og eyddum svo degi í Vancouver á heimleiðinni. Setjum inn fullt af myndum frá þessum tíma. Við áttum svo von á mömmu og ömmu þann 13. ágúst en það varð því miður ekkert úr því þar sem mamma lenti í því nokkrum dögum fyrr að detta illa og mjaðmagrindarbrotna. Hrikalegt svekkelsi fyrir okkur öll og alveg ömurlegt að vita af mömmu á spítala en ekki hér. En svona gerist og þær koma síðar þegar mamma er orðin góð sem verður vonandi sem fyrst. 

Frábær Pizzu staður í Seattle Lunch í Space Needle  
Gugga að taka mynd Andri Þór og Ísabella

Kiddi að taka meistarastykkið Kiddi með Tarzan hnífinn

Thetis Lake

Við Óskar förum á fætur þessa dagana klukkan hálf sex til þess að bera út blöð. Vinur hans Óskars sem ber blöðin út hér í hverfinu fór í sumarbúðir í tvær vikur og Óskar bauðst til þess að leysa hann af. Hann er sko að safna peningum og fannst þetta nú alveg frábært tækifæri til að vinna sér inn pening. Ekki hægt að segja að þetta sé vel borgað en Óskar er alsæll og finnst vel þess virði að fara snemma á fætur. Honum finnst samt fúlt að það þýði að hann þarf að fara fyrr að sofa.

Andri Þór á Thetis Lake

Eva og Gaui giftu sig á Laugardaginn og við óskum þeim til hamingju, húrra fyrir þeim.
 
Selma up close and personal Kveðjukoss Aðeins meiri farangur

      

Kveðjustund - hópmyndataka

Hópmyndataka af krakka skrílnum á kveðjustund 

SLIDESHOW AF ÖLLUM MYNDUNUM 

 
Smámont í lokinn, (ég er svo montinn einstaklingur) Það var viðtal við mig í Þriðjudags mogganum smellið hér til að lesa það og hér til að sjá smettið á mér á forsíðunni í fullri stærð.

untitled

08/12 2007, Sunday

Smá montblogg

photolife cover

 
Afsakið bloggletina í sumar - fullt eftir að koma inn, fleiri myndir frá heimsókn Pabba og kó og svo yfirlit yfir Kalla og kó heimsóknina. Það kemur seinna, von bráðar og allt það.

Að montinu - ég fékk loks forsíðu mynd, á kanadísku ljósmyndablaði, Photolife. Ég var valinn einn af efnilegri ljósmyndurum í keppni á þeirra vegum ansi ánægður með það.

Óska eftirtöldum til hamingju með afmælið, Mamma, Eva, Sólveig og Gunnar Snorri jr.

Segjum þetta gott í bili.

06/29 2007, Friday

Kayak ferð - Portland Island

The view from Portland Island
útsýnið frá tjaldstæðinu um kvöldið, ljósin í Vancouver lýsa upp nætur himininn

Fór með skólafélögum mínum Dave, Matt og Greg í kajak ferð til Portland Island. Sjá hér

06/22 2007, Friday

Útskrift

Amanda Joseph
Best Black and White Image 

Jæja þá er maður útskrifaður úr Western Academy of Photography. Ekkert smá fljótt að líða, varla byrjaður þegar þetta er búið.
Mér gekk bara nokkuð vel og er ánægður með árangurinn.

Ég var með hæstu einkunn í ljósmynduninni í minni deild.
Var með fjórðu hæstu einkunn fyrir skrifin sem ég er nokkuð ánægður með þar sem enska er nú ekki móðurmálið.

Ég fékk

80% í Writing
94% í Design
90% í Photography
83% fyrir business plan
87% fyrir Portfolio

Meðal einkunin mín fyrir allt árið var 84% (það er mismunandi vægi á áföngunum.)

Á útskriftinni fékk ég svo 4 verðlaun

Best Photojournalist
Best Black and White Image
Best Over all Image
Best Stock Image

Já bara ansi gott.

Hvað tekur við, ætti að skýrast á næstu vikum. Ég er kominn með afleysingar vinnu sem grafískur hönnuður fyrir Black Press, sem er stór fjölmiðla grúbba sem gefur út 6 dagblöð í Victoria og nágrenni. Það er reyndar ekki full vinna þar sem ég verð að leysa af fólk sem fer í sumarfrí.
Hér fyrir neðan eru svo vinnings myndirnar mínar

Brian Mah
Best Stock Photo 

Trident Fury
Best Photojournalist(reyndar sería um Trident Fury heræfinguna) 

balloon_guy
Best Over All Image 

06/18 2007, Monday

Portfolio og Útskrift


Cover of portfolio

Forsíðan á Porfolioinu mínu

Já þá er maður bara að verða búinn í skólanum, alvaran á næsta leyti. Ég skilaði Portfolio í síðustu viku, fæ að vita einkunirnar á morgunn og svo er útskriftin á fimmtudaginn. Árið er búið að vera ferlega fljótt að líða, alveg ótrúlega fljótt.

Það eru ýmis járn í eldinum hjá mér og sumarið mun án efa verða gott svona vinnulega séð. Annars ætla ég að taka 2 vikur í afslappelsi og fíflahátt áður enn raunveruleikinn bítur.

Ef að þið viljið sjá Portfolioið, smellið þá hér. Ef að þið eruð á lömuðum pésa sem er með eldra stýrikerfi en windoze XP þá verðið þið líklega að hægrismella á linkinn og velja save target as. Fællinn er u.þ.b 6MB Þetta er lo res pdf skoðist sem slíkur.

06/17 2007, Sunday

Faðir vor þú sem varst í Kanada

_MG_6036.jpg
Pabbi, Sólveig, Rannveig og Sigurjón í ferjunni á leið til Victoria

Jæja þá eru Pabbi, Rannveig og Sólveig kominn aftur heim eftir 2ja
vikna heimsókn hjá okkur. Það var frábært að sjá þau enda komið ár
síðan síðast. Við gerðum ýmislegt á þessum tveimur vikum þrátt fyrir
að veðrið væri aðeins að stríða okkur. Týpískt að vikan áður en þau
komu var 25 stiga hiti og sól upp á hvern dag en svo tók við rigning,
skýjað með stöku sólardögum og frekar kalt 15-17 gráður í þessar
vikur sem þau voru hjá okkur. Enn svona er þetta, líklega er best að
kenna loftlagsbreytingunum um þetta allt saman.

_MG_6031.jpg_MG_6027.jpg_MG_6030.jpg

Ég og Sigurjón skelltum okkur að ná í þau til Vancouver,
ferðalangarnir ansi þreyttir eftir langt flug. Keflavík – London /
London – Belfast  / Belfast – Vancouver / Vancouver – Victoria. Ansi
langir leggir og inn á milli voru rútuferðir. Minnir mann bara á
Plains, trains and automobiles nema í þessu tilviki var það, Plains,
ferries and automobiles.

_MG_6149.jpg

Fyrsta daginn var ekkert gefið eftir, allir komu til okkar í Brunch
og svo var lagt í hann í gönguferð um nágrennið. Öll hersingin fór
niður í Finnerty Cove svo á kaffihús í Cadboro Bay village.
Um kvöldið grillaði Sigurjón svo ofan í liðið. Bjór var drukkinn í
miklu magni og kjaftað fram eftir kvöldi.

  _MG_6045.jpg _MG_6069.jpg _MG_6088.jpg_MG_6096.jpg  _MG_6123.jpg _MG_6098.jpg _MG_6102.jpg  _MG_6142.jpg

Við erum búin að setja um 100 myndir inn á flickerinn okkar, segjum fleiri sögur á næstu dögum. 

05/30 2007, Wednesday

Kayak og meiri kajak

Burt Reynolds, the Deliverence

Fór með Burt Reynolds a.k.a John Franklin á kayak á Thetis Lake. Kallinn stóð sig með prýði þrátt fyrir að hafa aðeins einu sinni farið á kajak áður(og þá sat hann bara á honum).

Meira Hér 

05/22 2007, Tuesday

Í sól og sumaryl

Port Renfrew
Frá Port Renfrew sjá meira á snorrigunnarsson.com

Allt gott að frétta héðan. Frábært að vera komin í frí. Krökkunum finnst æði að mamma sé búin í prófum og við erum búin að vera mikið úti og gera margt skemmtilegt. Óskar minntist á það í próflestrar tímanum að ég væri nú ekkert alltof skemmtileg svo ég lofaði honum því að þegar ég færi í frí þá fengi hann Óskars dag. Hann fékk einn laugardag þar sem hann mátti ráðstafa öllum deginum, hvað yrði gert og hvað og hvar yrði borðað. Við byrjuðum daginn þann á súkkulaði og karamellu kleinuhringja morgunmat. Fórum svo út að hjóla og niðrí fjöru. Hádegismatur var svo á McDonalds og eftir það var farið í bíó, popp, kók, nammi þar (úff). Við enduðum svo daginn hjá Sif og co þar sem við borðuðum kvöldmat og gistum. Krakkarnir auðvitað vildu pulsur en heilsugúrúinn hún Siffó bjó til hollustu salat og hummus handa okkur fullorðna fólkinu sem var sko mjög vel þegið eftir sukk dagsins. Ísabella fær bráðum sinn dag því hún vill í mollið í hringekju og kaupa ís :)

Við keyptum okkur grill fyrir stuttu og það er nokkuð ljóst að þessi fjárfesting borgar sig, við eigum eftir að grilla oft og mikið, erum nú þegar búin að grilla oft og mikið. Snorri verður orðinn grillmeistari þegar að fólkið okkar kemur :) 

Fórum í Beacon Hill Park um daginn. Þar er svona petting zoo þar sem krakkarnir fengu að klappa helstu húsdýrunum.

Erum svo búin að bæta inn svaðilförum á kajak á kajaksíðuna okkar

IMGP0039 IMGP0030 IMGP0027

IMGP0015

04/29 2007, Sunday

Hmm já það er bara svona

Brian Mah

Svosem ekki mikið að frétta þessa dagana, Ísól er búin í skólanum, mjög fegin. Ég á 2 vikur eftir og þá er pása í 3 vikur til að gera portfolio. Ég er búin að fá aukavinnu í sumar, verð að aðstoða ljósmyndara hér í Victoria, Quinton Gordon heitir hann. Hann vinnur fyrir blöð eins og Outside, Canadian Geographic, bc magazine og fleiri. Ég fæ meira að segja borgað fyrir að aðstoða hann, hefði gert það frítt - ekki segja honum það.

Já endilega klikka hér á  jpgmag og kjósa myndina mína

Svo er ég kominn með nýjan vef, http://snorrigunnarsson.com/ sem er svona pseudo fyrirtækis vefur - Snorri Gunnarsson´s Photography, tékkið á honum.

Annars erum við bara farinn að hlakka til þess að fá gestina okkar í sumar.

Pabbi, Rannveig og Sólveig koma í júní
Kalli, Gugga, Kristbjörg, Kiddi og Krakkarnir í júlí
Þóra í Ágúst

Nóg að gera og skemmtilegir tímar framundan. 

04/15 2007, Sunday

Föstudagurinn 13. og afmælið hans Óðins

Friday the 13th 
Ísabella og Hendrix 

Af okkur er allt gott að frétta. Búið að vera mikið að gera í lok skólaársins. Ég á eftir að taka tvö lokapróf þann 21. og svo 23. apríl og er þá komin í langt frí. Það verður yndislegt, ætla að gera þá svo rosalega margt skemmtilegt en þó aðallega njóta tímans með börnunum. Ísabellu og Óskari finnst ég frekar leiðinleg þessa dagana, segja að ég sé alltaf bara að læra og hafi engan tíma til að leika við þau. Ég er búin að lofa þeim því að frá og með 23. apríl verði ég skemmtilegasta mamma í heimi.

_MG_4684 - Version 2 _MG_4691 - Version 2

Hér er vorið svo sannarlega komið. Veðrið búið að vera yndislegt og hitastigið búið að vera yfir 10 gráður. Fór um daginn í 17 og 18 stig í 3 daga. Allt farið að blómstra hrikalega fallegt og dýralífið áberandi, hef orðið var við nokkra geitunga þó það sé nú ekki fagnaðarefni. Dádýrin eru líka komin á kreik, við Ísabella mættum tveimur slíkum á leið úr leikskólanum á föstudag ásamt þó nokkrum kanínum sem eru reyndar dagleg sjón hér og íkornum. Fengum viðvörun með tölvupósti í síðustu viku um að tvö fjallljón hefðu verið á kreiki í nágrenninu. Við urðum nú sem betur fer ekki vör við þau samt en ég hef forðast það að taka styttri leiðina heim úr skóla Ísabellu, í gegnum skóginn. Langar ekki mikið til að mæta fjallaljóni þó ég væri til í að sjá eitt í hæfilegri fjarlægð.

_MG_4706 - Version 2 _MG_4724 - Version 2

Þar sem veðrið er orðið svona fínt eru krakkarnir mikið úti að leika. Hér í okkar hverfi er mjög mikið af börnum svo krakkarnir eru alsæl með það. Snorri er búin að vera í starfsnámi sem ljósmyndari hjá dagblaði hér í Victoria síðastliðnar tvær vikur. Fín reynsla það og gott að mynda sambönd. Ritsjórinn var svo ánægð með hann að hún sagðist myndu setja hann í fyrsta sæti sem freelance ljósmyndara. Snorri hefur verið með nokkrar forsíðumyndir á blaðinu og þar á meðal eina af Ísabellu sem birtist á föstudaginn 13. apríl. Sjá hér

_MG_4781 - Version 2

Hann Óðinn varð 7 ára í dag og við fórum í afmælisveislu til hans. Þar var mikið fjör, meðal annars slegið niður Svampur Sveinsson Pinata sem innihélt poka fyrir öll börnin með ýmsu góðgæti. Svo fengu krakkarnir útrás eftir sykurát í fjörugum vatnsbyssuleik.

_MG_4742 - Version 2 _MG_4786 - Version 2 _MG_4792 - Version 2 _MG_4807 - Version 2

_MG_4718 - Version 2 _MG_4697 - Version 2

 

04/07 2007, Saturday

1 dagur í lífi Ísólar

Gerði verkefni fyrir skólann sem heitir A Day In The Life, ég ákvað að fylgja eiginkonunni eftir, henni til mikillar ánægju! 

Day in a life - getting ready
Ef við gætum bara gert tvo hluti í einu þá væri lífið auðveldara

Day in a life - driving Isabella
Á leiðinni með Ísabellu á leikskólann, það rignir mikið í Kanada og Ísabella er ávallt viðbúin

Day in a life - isabella taking a bath
Ísabella fær kvöldbaðið, þegar maður er þriggja ára þá er vatn mjög hættulegt

 Day in a life - homework
Heimaverkefnin eru endalaus, klukkan er hálf eitt eftir miðnætti. 

03/16 2007, Friday

Upp eyjuna

_MG_0397-Edit_web
Gamall bátur sem var notaður sem veitingastaður - búið að loka honum

Fór í smá ferð norður eyjuna á miðvikudaginn. Ég og Byron skólafélagi minn vorum báðir komnir með smá “cabin fever” og langaði að taka myndir í nýju umhverfi.
Við ákváðum því að setja stefnuna á Cape Scott, sem er norðasti partur Vancouver Island. Það eru u.þ.b 700 km til Cape Scott, við ákváðum að gista eina nótt á Mount Douglas sem er skíðasvæðið hér á eyjunni en foreldrar Byrons eiga þar hús. Mount Douglas er staðsett á miðri leið til Cape Scott og hentaði því vel sem pit stop.
Ferðin gekk vel fyrsta daginn, við stoppuðum og tókum myndir af öllu mögulegu. Rákumst á heila hjörð af sæljónum sem lágu í leti á trjádrumba floti.

_MG_0595-Edit_web _MG_0416-Edit_web
Á leiðinni upp eftir dýralíf og snjór

Þegar við komum til Mount Douglas leist mér ekki á blikuna, farið var að snjóa og upp á toppnum var um 9 stiga frost, og við á Caravaninum með Florida dekkjunum, allt gekk þó vel og vorum við komnir í hús um 9 leytið.
Við fórum svo að plana næsta dag og forum á Netið, sem við bjuggumst nú ekki við að geta þar sem að það er bara símalínu net á Mount Douglas. Eftir smá bras komst þó lappinn minn inn á netið. Ég fer í póstinn minn og sé þar bréf frá einhverri Valerie, bjóst nú bara við venjulegum ruslpósti en nei þá er þessi Valerie ritstjóri hjá Canadian Geographic tímaritinu sem er kanadíska útgáfa National Geographic. Hún var að falast eftir ljósmyndum frá mér, ef ég ætti, af eyjum í Kanada. Meðal eyjanna sem hún vildi myndir af var Malcolm Island í B.C. Reyndar eina eyjan í B.C á listanum.


_MG_0559-Edit_web
Full strönd af ostruskjeljum 

Ég var auðvitað ansi hissa að vera að fá póst frá ritstjóra Canadian Geographic yfirleitt, verandi í skóla ennþá en það sem var þó merkilegast var að þessi Malcolm eyja var rétt fyrir norðan okkur. Ég svaraði um hæl og sagðist einmitt vera á leiðinni norður Vancouver eyju, grennslaðist líka fyrir hvar hún hefði heyrt af mér.
Hún varð voða glöð og bað mig vinsamlegast um eins og eitt forsíðu skot, sagðist hafa rekist á myndirnar mínar á netinu á Photoshelter síðunni minni og litist vel á þær.
Talandi um tilviljanir, skrítið líf.
Við fórum svo snemma morguninn eftir norður eyjuna og beinustu leið til Malcolm Island, eyddum deginum þar við að taka myndir og rabba við íbúana.

Ég set myndirnar sem ég sendi til blaðsins inn seinna þegar ég veit hvort þær verða birtar eða ekki, má víst ekki birta þær fyrr.    

_MG_0581-Edit_web _MG_0666-Edit_web _MG_0591-Edit_web
_MG_0738-Edit_web
Þetta er Rubbing Rocks ströndin á Malcolm Island - Þarna koma háhyrningar á sumrin til að nudda sér upp við steinana.
 

_MG_0454-Edit_web
Þessi var forvitinn 

03/04 2007, Sunday

Smá tilraun

Látið okkur vita ef að þið lendið í vandræðum við að skoða myndbandið!

 

 

02/25 2007, Sunday

Bloggletin í hámarki


Seakayaker

Sigurjón Sæfari pósar fyrir rafaugað - Environmental Portrait fyrir skólann 

Kominn tími til að vinir og vandamenn fái fréttir af okkur fjölskyldunni í Kanada, höfum verið ansi löt undanfarið að blogga. Það er reyndar ekkert merkilegt að frétta, hér gengur lífið sinn vanagang, allir uppteknir í skólanum. Reyndar er ég núna í viku upplestrarfríi sem er mjög fínt, reyni að nýta tímann í að lesa og læra fyrir miðsvetrarpróf. Snorri hefur nóg að gera, hann var beðinn um að skrifa þrjár greinar og taka myndir fyrir dagblað hér í Victoria, Peninsula News Review. Flott að fá svona verkefni og þó ekki búinn með námið.

Nú eru pabbi, Gugga, Kristbjörg, Kiddi og börn búin að panta flugferð til Kanada næsta sumar, við bíðum spennt eftir því að fá okkar fólk. Gunnar, Rannveig og Sólveig munu líka koma í sumar og fara vonandi að panta ferð sem fyrst. Okkur finnst nú ekki langt til sumarsins eins og veðrið er búið að vera undanfarna daga, sól og yndislegt. Krakkarnir eru alltaf jafn ánægð og það gengur vel hjá þeim. Þau eru farin að tala enskuna á fullu,daglegar framfarir þar, við þurfum meira að segja stundum að grípa inní þegar þau eru farin að tala á ensku sín á milli. Þau eru þá auðvitað búin að vera að tala enskuna allan daginn, en það verður auðvitað ekki liðið, á þessu heimili er að sjálfsögðu bara töluð íslenska. En sem sagt allt í góðu hér.

 

_MG_0324web _MG_9317-web
_MG_9974-web _MG_9992-web


1 2 3 4 5 6  Next»